Saturday, October 15, 2011

Breytt plön.

Hæ þið.

Núna er ég búin að vera 2 vikur í skólanum og þetta er allt dottið í svolitla rútínu hérna. Ég er að elska tímana mína sem ég valdi mér og þá sérstaklega Euroscepticism. Þar eigum við að gera risa rannsóknarritgerð og kúrsinn er á masters leveli og hann sagði að við gætum notað þessa ritgerð sem BA ritgerðina okkar ef við ættum hana eftir. Sem er snilld!

En plönin hjá mér eru búin  að breytast. Ég verð bara í skiptinámi í eina önn hérna í Salzburg. Þetta er allt mjög flókið, en vegna þess að áfangarnir sem ég átti að fá metna heim umfram valið mitt eru annaðhvort ekki kenndir í ár eða ég náði ekki að skrá mig í þá áður en þeir fylltust útaf þessu fáránlega skráningarkerfi hérna, þá gæti ég ekki fengið nema 10 einingar metnar eftir áramót. Og mér finnst ekki taka því að vera önn lengur ef ég fæ svona lítið metið, svo ég er að fara að flytja héðan eftir 3 og hálfan mánuð!

Mér finnst þetta alls ekkert slæmt. Flestir hinir skiptinemarnir eru hér bara eina önn hvort sem er. Og með þessu móti er mjög raunhæft markmið að útskrifast næstu jól heima á Íslandi. Sem væri geðveikt. Þetta verður örugglega smá vesen svona þarna í janúar, þar sem ég er í prófum hérna úti þangað til 31. janúar og önnin heima á Íslandi byrjar strax eftir áramót. Það verður bara áhugavert. 

Svo þið þurfið ekkert að sakna mín of mikið þarna heima.

Ég er samt að sjá fram á frekar rosalega önn hérna. Ég er í 34 einingum og þar af í 3 áföngum þar sem ég þarf að gera 20-30 blaðsíðna ritgerðir. Ég talaði samt við kennarana um þær og ég má skila þessu öllu inn á ensku. Sem betur fer. Annars yrði ég ein með orðabókinni minni að djamma þangað til næsta sumar. Ég þyrfti líka helst að skila þeim sem fyrst svo ég fái einkunnir sem fyrst upp á námslánin að gera, en ég hef leyfi til að skila þeim þangað til í febrúar og mars. Ég tek einhverjar ofurvikur á þetta.

Það er samt svo fáránlega kúl að vera hérna. Ég sat inní eldhúsi í vikunni og var að spjalla við krakka frá Kosovo, Mongólíu, Azerbadjan, Lettlandi, Ítalíu, Þýskalandi og Austurríki. Svo fór ég á Erasmus kvöld í Augustiner ölgerðinni á fimmtudaginn þar sem ég kynntist stelpu frá Bandaríkjunum og við spjölluðum um bandarísk stjórnmál allt kvöldið. Ég er að elska það að upplifa þetta. Það er svo allt annað að tala um svona við einhvern sem er þaðan heldur en að lesa bækur og fjölmiðla. Það er líka snilld að vera í tímum í Euroscepticism með krökkum frá Tékklandi, Póllandi, Austurríki, Þýskalandi, Ungverjalandi, Rúmeníu, Ítalíu, Búlgaríu og bara nefndu það. Það er allt annað að hlusta á fólk segja frá sínum þjóðarpúlsi og sinni upplifun heldur en að lesa staðreyndir í bókum. Ég er eini nemandinn þarna frá Íslandi og kennaranum finnst það stórkostlegt. Hann er alltaf að spyrja mig hvernig við horfum á hlutina og hvernig sjónarhornið okkar er. Það er smá gaman að vera frá stað sem er svona langt í burtu og er að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Gaman að vera í skólanum og læra um hluti sem eru að gerast akkúrat núna.

Þetta skiptinám er allavega að brjóta niður allar steríótýpur hjá mér. Gjörsamlega. Sem er snilld.

Svo er víst planið núna að fara til Noregs um jólin. Ég hef aldrei komið þangað svo það gæti verið gaman.

Annars eru bara einhverjar 2 vikur í það að ég fari til Stokkhólms á Rihönnu tónleika með Hillu og Huldu. Og nokkrum dögum þar á undan ætla ég á tónleika með Hurts í Innsbruck með Alinu og Zusönnu.

Æji það er bara snilld að búa í Evrópu.

Svo er ég að fara í fjallgöngu á morgun á fjall sem er á landamærum Austurríkis og Þýskalands sem er svipað hátt og Hvannadalshnjúkur. Það á eftir að vera eitthvað áhugavert þar sem ég stórefa það að hinir skiptinemarnir sem ég er að fara með séu þrautreyndir fjallgöngumenn. 

En ég skrifa um það næst.

Ykkar einlæg, 
Jóhanna


Wednesday, October 5, 2011

Fyrsta skólavikan.

Hæ allir.

Á morgun lýkur fyrstu skólavikunni minni í Salzborg. Hún hefur verið mjög áhugaverð þessi vika. Á mánudaginn fór ég í fyrsta stjórnmálafræðitímann minn sem fjallar um Evrópusambandið í efnahagsheiminum. Kennarinn þar talar mjög hratt og með svolítið austurrískum hreim svo ég átti í svolitlum erfiðleikum með að skilja hann. Ég skildi sirka helminginn af því sem fram fór og var svolítið týnd eftir tímann. Seinna um daginn fór ég svo í þýskutíma þar sem ég er að læra málfræðina upp á nýtt og gera verkefni eins og í menntaskóla. Það eru 4.5 auðveldar og ánægjulegar einingar.

Á þriðjudaginn fór ég svo í tíma í stjórnmálum evrópusambandsins. Ég er mikil í tímum núna sem tengjast evrópusambandinu, verð sprenglærð í því þegar ég kem heim. Þeir tímar eru uppi á fjallinu hjá kastalanum. Ég var alvarlega að íhuga að hætta við þann áfanga eftir að ég komst að því hvar hann var kenndur, en það er virkilega þess virði þegar upp er komið. Útsýnið er rosalega fallegt svo manni verður alveg nett sama um það hvað maður er sveittur. Það er líka svo rosalega heitt hérna alltaf, alla daga. Ég geri ekki annað en að svitna og ég var að tala við stelpu sem býr hérna og hún sagði að það væri ekki fyrren í desember þar sem það kæmi almennilegur kuldi. Fram að því er einn smá jakki alveg nóg. Herre gud.

Það er komin rosaleg löngun hjá mér að klippa hárið á mér stutt vegna þess að það er svo heitt að vera með sítt hár hérna. Og lúmskt erfitt þegar sturturnar eru ekki tilbúnar ennþá á hæðinni minni. Við erum 130 manns sem notum 2 sturtur saman og 4 klósett. Ég hef búið hér í rúmar tvær vikur og ég sé mjög sjaldan einhverja verkamenn vera að vinna í þessu. Fáránlegt dæmi.

Í dag var ég svo í tímum í inngangi að austurrískum stjórnmálum, sem ég er bara að taka upp á gamnið, og samvinnu og samningagerð í alþjóðastjórnmálum. Það er miserfitt að skilja kennarana þegar þeir tala, en það er samt gaman hvað maður skilur mikið. Sérstaklega þegar ég veit hvert samhengið er. Ég lendi reyndar oft í því að kennarinn spyr spurninga út í bekkinn, ég veit svarið, en ég kann bara að segja það á ensku svo ég þegi bara. Oft er líka ágætisþáttur af einkunninni fyrir áfangann þátttaka í tímum og umræðum. Sjáum hvernig það fer. Ég er svo feimin að tala þýskuna mína sem ég veit að er mjög málfræðilega vitlaus og barnaleg í svona akademískum hóp.

En á morgun er svo síðasti tími vikunnar, eurosceptisism, sem mér finnst mjög áhugavert. Ég held reyndar að þessi áfangi sé á mastersleveli því hann er svolítið krefjandi. En það er eini áfanginn sem ég tek á ensku. Ég hugsaði að það væri kannski sniðugt að hafa einn áfanga á ensku svona til vara ef manni myndi ekki ganga nógu vel í þýskunni og falla í einhverju.

Á föstudaginn er ég svo að fara í mjög spontant ferð til Stokkhólms og ætla að vera yfir helgina. Stundum má maður vera svolítið kærulaus og splæsa í flug þótt maður sé fátækur námsmaður. Það var reyndar ekki dýrt, ekki nema um 19 þúsund kall. Það er pínku mikil snilld að búa miðsvæðis í Evrópu stundum ...

Annars er það bara tchüss bis später.
Ég ætla að lesa heima fyrir morgundaginn.

Knús&kram,
Jóhanna

Sunday, October 2, 2011

Októberfest

Nú er frá mörgu að segja.

Núna er kynningarvikan hjá okkur skiptinemunum búin og allir byrja í skólanum á morgun. Á fimmtudaginn fórum við skiptinemahópurinn í Augustiner ölgerðina hérna í Salzburg og þar kynntist ég helling af nýju fólki. Svo á föstudaginn fórum við í hópferð í stóra kastalann sem gnæfir hérna yfir allt. Ég ákvað að fara í ferðina um kastalann með þýskumælandi guide. Það voru smá mistök. Ég svosem skildi heildarmyndina, en hann talaði með rosalega miklum austurrískum hreim. Til dæmis sagði hann eKal í staðinn fyrir eGal. En það var snilldarferð og ég er núna búin að eignast meira af vinum sem tala góða ensku.

En á laugardaginn fóru ég, Bjarki, Alina, Linda og Chiara á Októberfest. Við ferðuðumst með svokölluðum Bayern lestarmiða sem gildir innan Bavaria og Salzburg. Þetta er afsláttarmiði og við fórum 5 saman fram og til baka til Münich á 29 evrur samtals. Sjúklega nett. Lestarferðin var áhugaverð, en það voru alls ekki næg sæti fyrir alla sem voru að fara svo fólk stofnaði til partýa á göngunum og á opnum svæðum. Þegar við komum svo til Münich voru allir svo flottir í þjóðbúningunum. Til dæmis tóku þessar skvísur þetta alla leið.


Ég hafði þegar keypt mér austurrískan þjóðbúning á flóamarkaði í Salzburg á 10 evrur. Hann er ekkert sérstaklega flottur, en alveg nóg til að vera með. Krakkarnir keyptu sér svo allir þjóðbúninga í Münich sem voru tjah, misdýrir. Það var allavega sjúklega gaman að koma á Októberfest svona í einn dag og sjá þetta og upplifa stemninguna. Þegar maður fer næst veit maður allavega hvað maður er að fara út í og hvernig maður á að undirbúa sig. En þetta var snilld. Við komum svo ekki heim með lestinni fyrr en hálf 3 um nóttina. Planið hafði verið að vakna eldsnemma og fara í ferð í Arnarhreiðrið þar sem Hitler átti hús. En við vorum svo þreytt að það var flautað af. Ég fer bara seinna þangað.

En í dag er ég loksins komin inn í kerfið hérna í háskólanum svo ég gat loksins farið að skrá mig í áfanga. Ekki seinna vænna því skólinn byrjar í fyrramálið. Ég er samt frekar sár, það var akkúrat orðið fullt í áfanga sem mér fannst geðveikt spennandi, Energy cricis and politics, svo ég er á biðlista yfir að komast í hann. Annars er ég skráð í áfangana EU in the world economy, Introduction to EU politics, Introduction to Austrian politics, Cooperation and negotiations in international relations og síðast en ekki síst Euroskeptism in Austria and central Europe. Svo má ekki gleyma þýskukúrsinum mínum sem ég er skráð í, þótt allir þessir kúrsar séu reyndar kenndir á þýsku. Þetta er allt sjúklega spennandi áfangar og ég er með aðeins meira en 30 einingar. Það er reyndar skyldumæting í marga af þessum kúrsum og ef þú sleppir því að mæta í meira en 2 tíma án þess að hafa gilda afsökun fellur þú sjálfkrafa í áfanganum. En ég er alltaf í fríi á föstudögum svo það er frábært. Og ég byrja aldrei fyrr en kl. 11 á morgnana.

Ég er virkilega að meta það að skjótast út á McDonalds og fá mér kvöldmat. Ég er samt ekki viss um að ég nenni því. Það er bara ekkert annað opið hérna á sunnudögum því hér er kaþólskan tekin alvarlega. Hér er til dæmis vani að segja Grüz Gott þegar maður heilsar fólki. Bein þýðing á því er heilsum guði þótt í raun og veru sértu bara að segja hæ.

En annars er allt gott að frétta. 
Salzburg er snilld.

Einlæg,
Jóhanna