Wednesday, October 5, 2011

Fyrsta skólavikan.

Hæ allir.

Á morgun lýkur fyrstu skólavikunni minni í Salzborg. Hún hefur verið mjög áhugaverð þessi vika. Á mánudaginn fór ég í fyrsta stjórnmálafræðitímann minn sem fjallar um Evrópusambandið í efnahagsheiminum. Kennarinn þar talar mjög hratt og með svolítið austurrískum hreim svo ég átti í svolitlum erfiðleikum með að skilja hann. Ég skildi sirka helminginn af því sem fram fór og var svolítið týnd eftir tímann. Seinna um daginn fór ég svo í þýskutíma þar sem ég er að læra málfræðina upp á nýtt og gera verkefni eins og í menntaskóla. Það eru 4.5 auðveldar og ánægjulegar einingar.

Á þriðjudaginn fór ég svo í tíma í stjórnmálum evrópusambandsins. Ég er mikil í tímum núna sem tengjast evrópusambandinu, verð sprenglærð í því þegar ég kem heim. Þeir tímar eru uppi á fjallinu hjá kastalanum. Ég var alvarlega að íhuga að hætta við þann áfanga eftir að ég komst að því hvar hann var kenndur, en það er virkilega þess virði þegar upp er komið. Útsýnið er rosalega fallegt svo manni verður alveg nett sama um það hvað maður er sveittur. Það er líka svo rosalega heitt hérna alltaf, alla daga. Ég geri ekki annað en að svitna og ég var að tala við stelpu sem býr hérna og hún sagði að það væri ekki fyrren í desember þar sem það kæmi almennilegur kuldi. Fram að því er einn smá jakki alveg nóg. Herre gud.

Það er komin rosaleg löngun hjá mér að klippa hárið á mér stutt vegna þess að það er svo heitt að vera með sítt hár hérna. Og lúmskt erfitt þegar sturturnar eru ekki tilbúnar ennþá á hæðinni minni. Við erum 130 manns sem notum 2 sturtur saman og 4 klósett. Ég hef búið hér í rúmar tvær vikur og ég sé mjög sjaldan einhverja verkamenn vera að vinna í þessu. Fáránlegt dæmi.

Í dag var ég svo í tímum í inngangi að austurrískum stjórnmálum, sem ég er bara að taka upp á gamnið, og samvinnu og samningagerð í alþjóðastjórnmálum. Það er miserfitt að skilja kennarana þegar þeir tala, en það er samt gaman hvað maður skilur mikið. Sérstaklega þegar ég veit hvert samhengið er. Ég lendi reyndar oft í því að kennarinn spyr spurninga út í bekkinn, ég veit svarið, en ég kann bara að segja það á ensku svo ég þegi bara. Oft er líka ágætisþáttur af einkunninni fyrir áfangann þátttaka í tímum og umræðum. Sjáum hvernig það fer. Ég er svo feimin að tala þýskuna mína sem ég veit að er mjög málfræðilega vitlaus og barnaleg í svona akademískum hóp.

En á morgun er svo síðasti tími vikunnar, eurosceptisism, sem mér finnst mjög áhugavert. Ég held reyndar að þessi áfangi sé á mastersleveli því hann er svolítið krefjandi. En það er eini áfanginn sem ég tek á ensku. Ég hugsaði að það væri kannski sniðugt að hafa einn áfanga á ensku svona til vara ef manni myndi ekki ganga nógu vel í þýskunni og falla í einhverju.

Á föstudaginn er ég svo að fara í mjög spontant ferð til Stokkhólms og ætla að vera yfir helgina. Stundum má maður vera svolítið kærulaus og splæsa í flug þótt maður sé fátækur námsmaður. Það var reyndar ekki dýrt, ekki nema um 19 þúsund kall. Það er pínku mikil snilld að búa miðsvæðis í Evrópu stundum ...

Annars er það bara tchüss bis später.
Ég ætla að lesa heima fyrir morgundaginn.

Knús&kram,
Jóhanna

No comments:

Post a Comment