Hæ þið.
Það er allt að gerast í Salzborginni. Ég er búin að anmelda mig inn í bæjarfélagið svo það er loksins hægt að fara að senda mér póst. Og ég er komin með aðgang að "uglunni" hjá háskólanum. En af því að kerfið hérna hjá þeim sökkar þá get ég ekki ennþá skráð mig í neina áfanga og skólinn byrjar á mánudaginn. Megasvekk.
En ég fór til læknis í dag. Hef aldrei á ævinni farið í svona formlega og ítarlega læknisskoðun á bjagaðri ensku/þýsku. Niðurstaðan var allavega sú að það er ekki komin sýking í mýbitin mín, en ef þetta lagast ekki þá þarf ég að fara til húðlæknis. Sem ég nenni ekki. Svo þetta mun lagast.
En já, þessi vika er búin að vera kynningarvika hjá skiptinemunum. Mikið um upplýsingafyrirlestra og reddingar. Við erum 3 íslendingar hérna, sem er snilld en samt pínu leiðinlegt, þá er maður ekki eins sérstakur =) Ég er samt eina stelpan. Höfum nú þegar fengið spurningar eins og hvort allir Íslendingar séu ljóshærðir, hvernig maður ber fram Eyjafjallajökull og þess háttar snilld.
Ég er búin að eignast nokkuð af ágætis vinum. Bestu vinkonur mínar eru í augnablikinu frá Slóvakíu, Póllandi og Ítalíu. Ég er líka búin að kynnast nokkrum krökkum sem verða með mér í stjórnmálafræði og þau eru frá Ástralíu, Bretlandi og Ungverjalandi. Svo er ég líka búin að kynnast fólki frá Bandaríkjunum, Albaníu, Rússlandi, Spáni, Finnlandi, Danmörku og Þýskalandi.
Ég ætla að taka alla áfanga núna í haust á þýsku, sem verður örugglega svolítið erfitt, en þá vonandi kynnist ég meira af Austurrísku og Þýsku fólki og hætti að tala svona mikla ensku.
En bestu kveðjur frá fallegu yndislegu Salzburg,
Jóhanna Gísladóttir
Haus Merian, zimmer 408
Merianstrasse 40
5020 Salzburg
Austria
Thursday, September 29, 2011
Friday, September 23, 2011
Flóamarkaðurinn.
Hæ.
Í dag náði ég að gera helling. Ég fór niður á alþjóðaskrifstofuna í skólanum til þess að ná í welcome möppuna þar sem ég gleymdi. Þegar ég fór að útskýra fyrir konunni að ég hafi komið þarna á miðvikudaginn en gleymt svo öllu þurfti ég ekki að segja meira, hún mundi greinilega eftir mér. Hló smá af mér, enda pínu hálfvitalegt að gleyma þessu. En svo fór ég og hitti Zusönu frá Bratislava og við fórum saman á flóamarkaðinn. Þar ætluðum við að reyna að kaupa fyrir mig hjól. Þau seldust upp á 2 mínútum. Já, það var brjálað mikið af fólki þarna. En í staðinn gat ég keypt mér austurrískan þjóðbúning fyrir Októberfest næstu helgi á 10 evrur. Ekki slæmt það.
Hann er svipaður og þessi.

En á flóamarkaðnum hittum við Alinu frá Póllandi og við tvær fórum saman í hjólamissjon. Við tókum stætó saman eitthvert og vorum á þvílíkri hraðferð því verkstæðið sem við ætluðum í var alveg að loka. Hér lokar fólk almennt um hádegi. Sem er fáránlegt. En þar áttu þeir engin notuð hjól. En á leiðinni til baka fundum við antík búð sem seldi notuð hjól og ég fékk eitt lítið og sætt með körfu á 50 evrur. Svo var keyptur lás og lukt svo löggan taki mann ekki. Og voila. Ég á hjól.
Síðan fórum við saman að hitta aðra Erasmus krakka og við skráðum okkur í þýskuáfanga fyrir önnina. Þeir kostuðu samt 60 evrur svo ég náði að eyða smá pening í dag. En allt í gott málefni samt sem áður.
Ég er núna komin heim til mín. Og hér ætla ég að tjilla í kvöld. Það eru nóg af moskítóflugum hér í Salzburg og þær bíta mig á nóttunni. Núna er ég komin með nokkur góð stykki í framan (sem er snilld) og nokkur mjög ljót undir ilina. Sem er fáránlega vont því þá er maður alltaf að stíga á þeim. Svo ég ætla bara að vera heima í kvöld og bera á mig afterbite og ofnæmissmyrsl í tonnatali. Þá kannski verður maður sætari á morgun. Það er allavega ekkert sérstaklega aðlaðandi að vera með nokkur stór graftarkýli í framan. Ojbara.
Annars er allt gott að frétta. Maður er hættur að þurfa að ganga um með kort af Salzburg hvert sem maður fer. Svo byrjar kynningarvikan á mánudaginn og þá verður sko nóg að gera.
Bless í bili,
Jóhanna.
Wednesday, September 21, 2011
Salzach og Radler.
Vá. Það er eiginlega ekki hægt að blogga það er komið svo langt síðan síðast og margt búið að gerast. En ég reyni.
Ég, Óskar og Lára byrjuðum að ferðast 11.september til Rómar og leigðum bílaleigubíl. Þann daginn skoðuðum við Colosseum, keisarahæðina og fundum tjaldstæði numero uno. Við vorum semsagt með tjald, svefnpoka og dýnur alla ferðina og spöruðum hellings pening í gistingu. Sniðugu við. Daginn eftir kláruðum við að skoða Róm og fórum í heimsókn til páfans í Vatíkaninu. Það var engin röð svo við komumst strax inn, en ... það má ekki vera í stuttu eða flegnu hjá páfanum. Svo Lára og Óskar þurftu að vippa út stuttermabolunum og aukakjólnum sem þau voru nýbúin að versla og klæða sig í betur. Ég fékk svo stuttermabol hjá Óskari og skyrtuna hans til að vefja utan um lærin á mér. Útgangurinn á okkur var vægast sagt fyndin.
Ég get ekki sett inn neinar myndir af ráði frá ferðinni vegna þess að Óskar ákvað að taka myndavélasnúruna mína með sér til Svíþjóðar. Sorrí þið.
Um kvöldið gistum við á tjaldstæði í Tarquini og fórum svo til Siena og Flórens á þriðjudeginum. Vá hvað það var heitt. Og fallegt. Og góður matur.
Miðvikudagurinn fór í að skoða Pisa og keyra alla leið til Feneyja og finna sér gott tjaldstæði og fara í sturtu. Þar sváfum við óvart með opið tjald og ég fékk moskítóbit út um allt. Meirasegja á andlitið. Og fékk ofnæmi í bitin og klæjaði. Það var ánægjulegt. Fimmtudagurinn fór í að skoða Feneyjar og keyra til Bolzano til frænda Óskars, Gísla, sem leyfði okkur að gista hjá sér eina nótt. Daginn eftir fórum við svo öll fjögur saman til Ötztal að hitta Ingó sem vinnur í Haiming sem raft guide. Á laugardeginum fórum við svo í rafting hjá Ingó og eftir það kíktum við í vatnasvæðið á Area 47. Sem var snilld. Sunnudagurinn var allt í einu kaldur því það byrjaði að hellirigna um morguninn. Við höfðum planað að vera í Ötztal hjá Ingó fram á mánudagsmorgun en þar sem tjaldið og dótið okkar var á floti ákváðum við að fara bara beint til Salzburg. Á mánudagsmorguninn náði ég svo í lyklana að herberginu mínu á stúdentagörðunum þar. Eftir að hafa skoðað herbergið drifum við okkur í Ikea þar sem við vorum með bílaleigubíl þá var snilld að geta nýtt ferðina. Síðan eftir að innkaupunum hafði verið hent aftur heim til mín héldum við til Vínar. Ennþá í rigningu. Gistum þar eina nótt og síðan fóru Lára og Óskar til síns heima á meðan ég varð eftir og fór til baka til Salzburg. Þetta var stutta ferðasagan.
En núna er ég búin að vera 2 daga í Salzburg ein. Fyrsti dagurinn fór í það að taka upp allt Ikea dótið og koma farangrinum mínum fyrir. Það hefði verið gaman að setja inn myndir af því en ég verð víst að sætta mig við það að myndavélasnúran sé í Svíþjóð í bili. Síðan reddaði ég mér interneti, keypti Austurrískt símanúmer (0043 676 427 1642) og fór í matvörubúð. Í dag þurfti ég svo að fara niðrá skrifstofu í skólanum og melda mig inn. Ég gleymdi svo að sjálfsögðu welcome möppunni á borðinu á skrifstofunni svo ég þarf að fara aftur niðureftir á morgun og ná í hana. Svo þarf ég að fara í hinn enda bæjarins á morgun til að fá einhverja undirskrift svo ég geti meldað mig inn í bæjarfélagið. Allt svona vesen er bara skemmtilegt.
Á föstudaginn er svo risa flóamarkaður niðrí bæ vegna þess að það er e-ð festival hérna. Þá ætla ég að fara með stelpu sem ég kynntist í dag. Hún sagði að þar gæti ég keypt mér ódýrt hjól og svona. Fólki finnst víst rosalega dýrt að kaupa sér miða í strætó, þ.e. 100 evrur önnin. Sem er 16.0000 krónur íslenskar. Svo allir hjóla.
Í dag hitti ég líka stelpu frá Slóvakíu niðrí bæ og hún er sjúklega hjálpsöm og næs. Hún er búin að búa hérna í 1 ár svo hún veit allt um það hvernig þetta virkar hérna. Það var geðveikt veður í dag svo við keyptum okkur radler í súpermarkað og settumst í grasið hjá Salzach ánni. Sjúklega kósí.
En ég er allavega byrjuð að kynnast fólki, er líklegast á leiðinni á Októberfest í Münich um helgina og svo byrjar kynningarvikan á mánudaginn. Allt að gerast. Verst að fólk hér talar almennt ensku svo þýskan er ekkert byrjuð að blómstra. Það gerist kannski þegar maður byrjar í skólanum og fer í tíma þar sem allt fer fram á þýsku.
Þar til næst,
Jóhanna

Saturday, September 10, 2011
Au revoir.
Þá er komið að þessu.
Það er flug eftir nokkra klukkutíma til Rómaborgar. Lára kom til Stokkhólms í dag og ég fór með hana að versla. Við héldum að allar búðir lokuðu kl. 19 svo við vorum ekkert að flýta okkur of mikið í búðunum. En það lokaði fyrr svo Lára gat ekki klárað að versla allt. En við örvæntum eigi, það er H&M í Ítalíu og Austurríki.
Við erum búin að kaupa tjald, svefnpoka og dýnur á liðið, búin að panta bílaleigubíl og látum svo bara veðrið leiða okkur áfram. Hlakka samt sjúklega til að rafta í Ötztal næstu helgi. Svo á mánudaginn eftir rúma viku verð ég loksins komin á áfangastað með allar þessar töskur. Salzburg!
Og ég er búin að kaupa mér nýja myndavél svo ég get tekið fínar myndir. Húrra.
Þangað til næst,

Tuesday, September 6, 2011
Ekkert lýðræði.
Sæl aftur.
Ég er að slaka mér hérna í rafmagnsrúmi uppá hosteli. Ég er orðin gamalmenni með ónýtt bak á öllu þessu brölti í Stokkhólmi. Djók. Ég ákvað samt að taka mér frídag frá þessu mánaðarfríi sem ég er í um þessar mundir. Ég er samt að verða smá brjáluð á því að vera ekki byrjuð í skólanum. Það er enn alveg tæpur mánuður í það að það gerist.
En ég var að lenda í veseni með skiptinámið mitt. Eins flókið og skemmtilegt þetta er, þá samþykkir stjórnmálafræðideildin hvaða kúrsa ég fæ metna úti og hvað ekki. Ég hafði ekki fengið nema einn kúrs samþykktan, Lýðræði: kenning eða veruleiki - í staðinn fyrir Democracy kúrs úti. Allt hitt sem ég ætla að taka fer beint inn í val, þar sem kvótinn er 46 einingar. Allavega, þá er listinn yfir kúrsa sem kenndir eru skólaárið 2011-2012 loksins komin inn. Og ég fer að skoða. Og enginn Democracy kúrs kenndur. Vei.
Ég, ekki nennandi að fá bara 46 einingar inn fyrir þetta skólaárið fer í smá rannsóknarvinnu. Kemur á daginn að ég finn kúrs(a) sem geta komið í staðinn fyrir Evrópusamruna kúrsinn heima. Svo ég tek 2 kúrsa úti (The politics of the European union I&II) og fæ einn metinn heima. Svipað í einingafjölda svo það er í lagi. Ég sem var akkúrat að vona að þetta yrði ekki samþykkt. Í þessu fagi er kennd ein bók heima, en svona 10-12 bækur úti. Reyndar vonandi bara einhver hluti úr 10-12 bókum. Annað væri grín. Svo ég skráði mig í fjarnám í þýskuáfanga í HÍ í haust. Svo ég er smá byrjuð að læra. Húrra.
En allavega. Við Óskar erum búin að fara í skoðunarferð um Stokkhólm, labbandi. Og líka í smá verslunarleiðangur. Og líka í Tívolí. Það var snilldin ein. Við fórum með Huldu og Eið sem eru vinir hans Óskars sem eru bæði í skiptinámi hérna í vetur. Við byrjuðum á því að fara í rússíbana fyrir börn og lúkkaði alls ekki hræðilegur. Sem hann samt var. Jesús. Ég mun seint flokkast undir tívolí-hugrakka manneskju, en ég fór þó í fjóra rússíbana af fimm. Það eina sem ég lagði ekki í fyrir mitt litla líf voru fallturnarnir tveir.
Við lentum í skemmtilegu atviki í gær. Áður en Óskar fór í skólann og ég fór að tjilla inná tölvustofu í skólanum hans, þá fórum við í smá verslunarleiðangur. Óskar keypti sér skó. Þegar við vorum svo búin í skólanum (ég að stelast), og búin að taka lestina heim (sem tekur 25 mínútur frá miðbænum), þá stöndum við á brautarpallinum og ég spyr Óskar hvar skórnir séu. Hann er ekki með þá, ég er ekki með þá. Svo við áttum okkur á því að pokinn með skónum hafi gleymst í búðinni. Svo við tökum lestina aftur niður í bæ og náum inn rétt fyrir lokun. Og sem betur fer voru skórnir þar ennþá. Sem þakkarvott við alheiminn fórum við og fengum okkur mexíkanskan mat og hveitibjór.
Og núna er Óskar komin heim úr skólanum og við ætlum að skella okkur í Jysk að kaupa svefnpoka, dýnur og tjald til þess að nota í ferðalaginu okkar um Ítalíu og Austurríki sem hefst á sunnudaginn.

Monday, September 5, 2011
Stokkholmur.
Hae allir.
Nuna er eg buin ad vera i Stokkholmi i 5 daga. Eg er buin ad na ad gera og sja margt, enda ordid svolitid erfitt ad vakna a morgnana.
Eg flaug ut 31.agust. Akvad ad vera tjillud a thvi og taka flugrutuna kl. 5:20, enda atti flugvelin ekki ad fara fyrr en 7:50. Nema viti menn. Leifstod er TRODIN thegar eg kem. Mer leist ekkert a blikuna thegar eg sa ad rodin inn i check inn fyrir Icelandair nadi naestum ad kaffitari hinum megin i byggingunni. Tha for eg i sjalfsafgreidslurodina sem var heldur minni. Thratt fyrir ad eg hafi tekkad mig inn rafraent lenti eg svo i sjuklega langri rod inn i baggage drop. Fraenka min i security hlidinu thurfti svo ad gera jogurtina mina upptaeka. Madur var alveg buin ad gleyma thessum vokvalögum i öllu stressinu nidri. En thessum 10 minutum fyrir boarding eyddi eg i ad kaupa mer tvöfaldan Da Vinci med sukkuladisyropi a Kaffitar. Svo ljuft.
Thegar eg lenti i Stokkholmi med töskurnar minar thrjar var enginn Oskar. Hann kom samt a endanum eins og engill sendur af himnum ofan. Enda voru töskurnar farnar ad siga duglega i hja manneskju sem var klaedd i thungu fötin sin og dunulpu til ad vera ekki med yfirvigt.
Partyid helt svo afram thegar vid thurftum ad drösla farangrinum minum i straeto, lest og svo tvo tunnelbana.
En thar lauk djamminu ekki thvi 2 dögum seinna thurftum vid ad flytja okkur yfir a hostel. Tha var eg med allan minn farangur og Oskar med sinn. Og vid thurftum ad sjalfsogdu ad taka 2 lestir thangad. Eg hlakka vaegast sagt ekki til thess ad fara aftur med farangurinn i flug til Romar eftir 6 daga. En thad er önnur saga.
Blogga meira um Stokkholm i vikunni.
Thar til naest,
Johanna

Subscribe to:
Posts (Atom)