Þá fer að koma að því. Mamma kemur eftir 5 daga að ná í mig. Ég get ekki beðið. Það er komið nóg af þessu útlandastússi og mig langar að komast héðan. Í rauninni þrái ég að komast héðan. Ég var tilbúin að fara heim um jólin og þessi auka mánuður síðan þá hefur ekki gert mikið í að hjálpa heimþránni að dvína. Janúar er líka ekki búin að vera sérstaklega kúl, þannig séð.
Jú, ég og Óskar fórum til Münich 3.janúar í túristaferð sem var mega gaman. Og ég fór með honum á bretti í Flachau 7.janúar. Og ég fór í helgarferð til Sviss 20-22.janúar. En fyrir utan það er ég búin að vera að rotna yfir námsbókunum síðan 9.janúar. Ég er núna búin að fara í 3 lokapróf og skila 2 stórum ritgerðum. Eftir að vera komin í helgafrí um hádegi í dag eftir próf í mastersáfanganum mínum um Euroscepticism fór ég beint heim, borðaði og lagði mig. Ég var í prófi á mánudaginn, skilaði 10 bls ritgerð á miðvikudegi og svo risapróf í dag. Ég var soldið búin á því. Og þetta er ekki enn búið. Ég á eftir að fara í 1 próf 31.janúar rétt áður en ég fer og næ í mömmu upp á flugvöll, sem er um ESB. Eina vesenið við þetta er að þýða allar glærurnar á þessum öllum glærupökkum frá þýsku yfir á ensku. Það er bara google translate copy paste sem er lúmskt tímafrekt. Ég er svo búin að kvíða þessari síðustu ritgerð rosalega mikið, en viss léttir að hinar tvær séu búnar.
Súkkulaðibúð í Sviss.
En já, ég fór til Sviss að heimsækja Kalla sem er í ETH í Zürich. Núna langar mig líka þangað. En þegar ég mæti á föstudeginum hittist norðurlandamafían á lestarstöðinni, þ.e. ég og Kalli, einn Finni, einn Norðmaður, einn Dani og einn Svíi. Mjög skemmtilegt lið sem er í erasmus í Zürich og vildi komast yfir vissan "Bucket list" yfir hluti sem þau vildu ná að gera fyrir heimför, svo ég naut góðs af því og upplifði bjórdrykkju í tramma, vínskoðun í rúmfataverslun og fondú í gömlu húsi frá 16.öld eða eitthvað. Á laugardeginum fórum við Kalli svo í risa göngutúr um Zürich og smökkuðum brjálað elegant súkkulaði þar sem afgreiðslukonurnar eru klæddar eins og flugfreyjur. Á sunnudeginum var ég að fara snemma heim, Kalli fór á skíði og ég var að fara í próf daginn eftir. Þegar ég settist inn í lestina kl. 08:40 var okkur tilkynnt að það væri svo mikil snjóflóðahætta í Týrol að við þurftum að fara úr lestinni við landamærin og fara svo í rútu sem myndi keyra okkur til Innsbruck. Og ég sem ætlaði að njóta þess að vera bara í einni lest minni Zürich og Salzburg og þurfa aldrei að skipta um lest á leiðinni. Ég var þó allavega ekki með skíðabúnað eins og flestir aðrir.
En já. Erasmus lokapartý á morgun sem verður örugglega rosalega gaman. Svo er það bara áframhaldandi rotnun inni í herbergi yfir námsbókunum þangað til á þriðjudaginn þegar ég fer í síðustu kennslustundina mína, síðasta prófið mitt og skila (vonandi) síðustu ritgerðinni minni. Þá verður sko léttir að geta sagt að maður sé bara nemandi í einum háskóla, en ekki tveimur. Ég hef algjörlega látið námið í HÍ sitja á hakanum vegna þess hvað það er búið að vera mikið að gera hér. Það reddast ...
Allavega. Fimm dagar í frelsi, 7 dagar í Köben og 10 dagar í Stokkhólm. Og tíminn ætlar ekki að líða ... 24 dagar í Ísland. Það verður æði. Og ég ætla ekki að flytja til Útlanda aftur fyrr en í fyrsta lagi næstu áramót. Maður verður stundum að njóta þess að vera heima hjá sér. Ég á allavega alveg pottþétt eftir að vera í skýjunum fyrsta mánuðinn heima. En mig grunar svosem að það færist einhver útlandaþrá yfir mig áður en langt um líður. Það er bara þannig.
Annars er loksins alvöru snjór hér í Salzburg. Samt ekki á miðað við Ísland. Vonandi verður þessi snjór ennþá þegar ég kem.
Og þá er það bara áframhaldandi prófalestur. Trúi því ekki að ég sé aftur að fara í lokaprófs session eftir 3 mánuði. Dæs.
Ástir á ykkur og RISA heimtilhlökkun!

