Það er komið nýtt ár. Það er að styttast í my scary age, sem er 23 ára. Dæs. Annars langaði mig að gera upp árið 2011.
Janúar - byrjaði í fullu háskólanámi, var að vinna ótrúlega mikið með í janúar til að safna pening. Ófréttnæmt.
Febrúar - Fór til Sölden í snilldarbrettaferð með snilldarfólki. Fór svo heim, tók próf og fór til Georgíu yfir helgi.
Mars - átti afmæli og fór svo út til Georgíu í 10 daga. Kom heim og var sjúklega blönk eftir öll ferðalögin. Samt búin að safna helling af góðum minningum í gleðibankann.
Apríl - var skítblönk og stundaði skólann og vinnu. Mjög ófréttnæmt.
Maí - Vorpróf, sem ég rústaði. Svo byrjaði ég í sumarvinnunni minni hjá skátunum og fór í river rafting þegar eldgosið byrjaði.
Júní - útilegur, sól, vinna úti og bara svona almenn snilld.
Júlí - Meiri almenn snilld.
Ágúst - sumarfrí í skátunum, verslunarmannahelgarsnilld, smá vinna og svo flytja-til-útlanda undirbúningur. Flytja burt af Hallveigarstígnum =(
September - Fór til Stokkhólms í 10 daga, svo kom Lára þangað og við fórum saman með Óskari í bíltúr um Ítalíu og Austurríki í 9 daga. Snilldarferð í alla staði. Var svo komin til Salzburg 20.september þar sem ég myndi búa næstu mánuðina. Gífurlegt nýflutt-hingað vesen fer í gang og kynnast nýju fólki.
Október - Fer til Stokkhólms í heimsókn ásamt því að upplifa erasmus lífið í Salzburg og tek þá ákvörðun að vera bara eina önn í skiptinámi vegna vesenis.
Nóvember - Fer til Stokkhólms á Rihönnu tónleika með Hillu og Huldu. En hún mætti ekki á sviðið. Samt snilldarferð. Fer svo til Portúgal með nokkrum erasmus krökkum og það var mjög áhugaverð ferð.
Desember - Fer í yndislega heimsóknarferð til Danmerkur og Svíþjóðar að hitta bræður mína eftir langan tíma. Er svo á fullu í skólanum þar til 15.desember þegar ég hitti Óskar í Berlín. Svo förum við saman til Sölden í brettaferð og eyðum restinni af árinu í Salzburg.
Þarna er ég í Berlín.
Árið hefur í alla staði verið mjög ánægjulegt og fróðlegt. Ég er búin að ferðast helling, eða til 10 landa, og vera svolítið blönk inn á milli í tilefni af því. Sem er lífið, að mínu mati. Ég hef kynnst rosalega mikið af nýju fólki og átt mjög skemmtilega og áhugaverða erasmus reynslu. Í alla staði mjög lærdómsríkt og heillandi ár.
Ég hlakka samt sem áður gífurlega til þess að komast aftur heim. Ég er farin að þrá hversdagslífið á Íslandi, þ.e. að leigja í miðbænum með snilldar vinkonum, að mæta í skólann þar sem töluð er íslenska, og mæta í vinnu. Ég virkilega sakna þess að vinna. En það eru ekki margir dagar í mig. Þannig séð. Ég kem til Íslands í mars einhverntíma.
Planið er núna:
Janúar - jesús minn almáttugur hvað það er mikið að læra hjá mér. Önnin mín í Salzburg klárast ekki fyrr en 31.janúar. Þannig að þangað til 31.janúar þarf ég að fara í 4 próf og skila 3 stórum ritgerðum. Og gera allt klárt fyrir að fara héðan. Og á meðan er ég líka skráð í 40 einingar í stjórnmálafræði heima í HÍ, vegna þess að annirnar skerast. Þetta verður semsagt 70 eininga janúar með öllu tilheyrandi.
Samt ætla ég með Óskari að skoða Dachau útrýmingabúðirnar hjá Münich á morgun. Og fara á snjóbretti hinn. Svo byrja ég að læra, ég lofa. Óskar fer til baka til Stokkhólms 10.janúar. Þá eru bara 20 dagar í að mamma komi og nái í mig til Salzburg. Við fljúgum svo saman til Köben og eyðum helginni með bræðrum mínum. Svo fer mamma heim og ég skýst aðeins yfir til Stokkhólms þar sem ég ætla að vera þangað til í mars.
Held ég. Annars er þetta allt rosalega óákveðið - nema ég er komin með samastað í Reykjavík þegar ég kem heim svo það eru snilldarhlutir sem bíða eftir mér heima á nýja árinu.
Hlakka of mikið til að sjá ykkur öll í kuldanum.
Kveðjur heim ...

No comments:
Post a Comment