Saturday, September 10, 2011

Au revoir.

Þá er komið að þessu.

Það er flug eftir nokkra klukkutíma til Rómaborgar. Lára kom til Stokkhólms í dag og ég fór með hana að versla. Við héldum að allar búðir lokuðu kl. 19 svo við vorum ekkert að flýta okkur of mikið í búðunum. En það lokaði fyrr svo Lára gat ekki klárað að versla allt. En við örvæntum eigi, það er H&M í Ítalíu og Austurríki.

Við erum búin að kaupa tjald, svefnpoka og dýnur á liðið, búin að panta bílaleigubíl og látum svo bara veðrið leiða okkur áfram. Hlakka samt sjúklega til að rafta í Ötztal næstu helgi. Svo á mánudaginn eftir rúma viku verð ég loksins komin á áfangastað með allar þessar töskur. Salzburg!



Og ég er búin að kaupa mér nýja myndavél svo ég get tekið fínar myndir. Húrra.

Þangað til næst,
Jóhanna

No comments:

Post a Comment