Hæ þið.
Það er allt að gerast í Salzborginni. Ég er búin að anmelda mig inn í bæjarfélagið svo það er loksins hægt að fara að senda mér póst. Og ég er komin með aðgang að "uglunni" hjá háskólanum. En af því að kerfið hérna hjá þeim sökkar þá get ég ekki ennþá skráð mig í neina áfanga og skólinn byrjar á mánudaginn. Megasvekk.
En ég fór til læknis í dag. Hef aldrei á ævinni farið í svona formlega og ítarlega læknisskoðun á bjagaðri ensku/þýsku. Niðurstaðan var allavega sú að það er ekki komin sýking í mýbitin mín, en ef þetta lagast ekki þá þarf ég að fara til húðlæknis. Sem ég nenni ekki. Svo þetta mun lagast.
En já, þessi vika er búin að vera kynningarvika hjá skiptinemunum. Mikið um upplýsingafyrirlestra og reddingar. Við erum 3 íslendingar hérna, sem er snilld en samt pínu leiðinlegt, þá er maður ekki eins sérstakur =) Ég er samt eina stelpan. Höfum nú þegar fengið spurningar eins og hvort allir Íslendingar séu ljóshærðir, hvernig maður ber fram Eyjafjallajökull og þess háttar snilld.
Ég er búin að eignast nokkuð af ágætis vinum. Bestu vinkonur mínar eru í augnablikinu frá Slóvakíu, Póllandi og Ítalíu. Ég er líka búin að kynnast nokkrum krökkum sem verða með mér í stjórnmálafræði og þau eru frá Ástralíu, Bretlandi og Ungverjalandi. Svo er ég líka búin að kynnast fólki frá Bandaríkjunum, Albaníu, Rússlandi, Spáni, Finnlandi, Danmörku og Þýskalandi.
Ég ætla að taka alla áfanga núna í haust á þýsku, sem verður örugglega svolítið erfitt, en þá vonandi kynnist ég meira af Austurrísku og Þýsku fólki og hætti að tala svona mikla ensku.
En bestu kveðjur frá fallegu yndislegu Salzburg,
Jóhanna Gísladóttir
Haus Merian, zimmer 408
Merianstrasse 40
5020 Salzburg
Austria
Nóg að gera hjá MamaJo! ;) Ekki alveg jafn gaman að það sé nóg af þessum moskítóbitum en eins og þú segir þá á þetta allt eftir að lagast ;)
ReplyDeleteSnilld svo að vera komin í gang með þetta allt og kynnast fólki og svona. Svo er eins gott að kikka þýskunni í gang haha svo þú verðir ekki í tómu tjóni í skólanum, en ég hef fulla trú á að þú takir það með trompi og verður altalandi en to tre ;)
luuuv frá krakkanum