Núna er ég búin að vera 2 vikur í skólanum og þetta er allt dottið í svolitla rútínu hérna. Ég er að elska tímana mína sem ég valdi mér og þá sérstaklega Euroscepticism. Þar eigum við að gera risa rannsóknarritgerð og kúrsinn er á masters leveli og hann sagði að við gætum notað þessa ritgerð sem BA ritgerðina okkar ef við ættum hana eftir. Sem er snilld!
En plönin hjá mér eru búin að breytast. Ég verð bara í skiptinámi í eina önn hérna í Salzburg. Þetta er allt mjög flókið, en vegna þess að áfangarnir sem ég átti að fá metna heim umfram valið mitt eru annaðhvort ekki kenndir í ár eða ég náði ekki að skrá mig í þá áður en þeir fylltust útaf þessu fáránlega skráningarkerfi hérna, þá gæti ég ekki fengið nema 10 einingar metnar eftir áramót. Og mér finnst ekki taka því að vera önn lengur ef ég fæ svona lítið metið, svo ég er að fara að flytja héðan eftir 3 og hálfan mánuð!
Mér finnst þetta alls ekkert slæmt. Flestir hinir skiptinemarnir eru hér bara eina önn hvort sem er. Og með þessu móti er mjög raunhæft markmið að útskrifast næstu jól heima á Íslandi. Sem væri geðveikt. Þetta verður örugglega smá vesen svona þarna í janúar, þar sem ég er í prófum hérna úti þangað til 31. janúar og önnin heima á Íslandi byrjar strax eftir áramót. Það verður bara áhugavert.
Svo þið þurfið ekkert að sakna mín of mikið þarna heima.
Ég er samt að sjá fram á frekar rosalega önn hérna. Ég er í 34 einingum og þar af í 3 áföngum þar sem ég þarf að gera 20-30 blaðsíðna ritgerðir. Ég talaði samt við kennarana um þær og ég má skila þessu öllu inn á ensku. Sem betur fer. Annars yrði ég ein með orðabókinni minni að djamma þangað til næsta sumar. Ég þyrfti líka helst að skila þeim sem fyrst svo ég fái einkunnir sem fyrst upp á námslánin að gera, en ég hef leyfi til að skila þeim þangað til í febrúar og mars. Ég tek einhverjar ofurvikur á þetta.
Það er samt svo fáránlega kúl að vera hérna. Ég sat inní eldhúsi í vikunni og var að spjalla við krakka frá Kosovo, Mongólíu, Azerbadjan, Lettlandi, Ítalíu, Þýskalandi og Austurríki. Svo fór ég á Erasmus kvöld í Augustiner ölgerðinni á fimmtudaginn þar sem ég kynntist stelpu frá Bandaríkjunum og við spjölluðum um bandarísk stjórnmál allt kvöldið. Ég er að elska það að upplifa þetta. Það er svo allt annað að tala um svona við einhvern sem er þaðan heldur en að lesa bækur og fjölmiðla. Það er líka snilld að vera í tímum í Euroscepticism með krökkum frá Tékklandi, Póllandi, Austurríki, Þýskalandi, Ungverjalandi, Rúmeníu, Ítalíu, Búlgaríu og bara nefndu það. Það er allt annað að hlusta á fólk segja frá sínum þjóðarpúlsi og sinni upplifun heldur en að lesa staðreyndir í bókum. Ég er eini nemandinn þarna frá Íslandi og kennaranum finnst það stórkostlegt. Hann er alltaf að spyrja mig hvernig við horfum á hlutina og hvernig sjónarhornið okkar er. Það er smá gaman að vera frá stað sem er svona langt í burtu og er að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Gaman að vera í skólanum og læra um hluti sem eru að gerast akkúrat núna.
Þetta skiptinám er allavega að brjóta niður allar steríótýpur hjá mér. Gjörsamlega. Sem er snilld.
Svo er víst planið núna að fara til Noregs um jólin. Ég hef aldrei komið þangað svo það gæti verið gaman.
Annars eru bara einhverjar 2 vikur í það að ég fari til Stokkhólms á Rihönnu tónleika með Hillu og Huldu. Og nokkrum dögum þar á undan ætla ég á tónleika með Hurts í Innsbruck með Alinu og Zusönnu.
Æji það er bara snilld að búa í Evrópu.
Svo er ég að fara í fjallgöngu á morgun á fjall sem er á landamærum Austurríkis og Þýskalands sem er svipað hátt og Hvannadalshnjúkur. Það á eftir að vera eitthvað áhugavert þar sem ég stórefa það að hinir skiptinemarnir sem ég er að fara með séu þrautreyndir fjallgöngumenn.
En ég skrifa um það næst.
Ykkar einlæg,
Jóhanna
Jeijj svo gaman hjá þér:) Ert algjör snillingur og átt eftir að rústa þessu námi ;)
ReplyDelete