Býður mér í augnablikinu upp á tvö lokapróf 31.janúar. Eitt er kl. 11:00 og hitt byrjar kl. 12:00. Og þau eru ekki haldin í sömu byggingunni. Ég er ráðalaus. Bandarísk stjórnmál og Evrópusambandið eru svo mikið fyrir það að vera ofan í hvort öðru.
En á morgun fer ég í fyrsta prófið mitt. Austurrísk stjórnmál. Verður áhugavert. Ég má vera með orðabók í prófinu. Sem verður snilld.
Óskar yfirgaf mig í morgun. Það er samt á vissan hátt jákvætt. Það var orðið þreytandi að búa tvö í 10 fermetra herbergi með 80 cm rúm. Ég held því áfram. Og deili eldhúsi og klósetti með fólki frá Lettlandi, Ítalíu, Danmörku, Kazaksthan, Þýskalandi, Indlandi, Nepal, Póllandi og Íran. Það elda allir rosalega mikinn lauk. Og sumir kunna ekki að nota klósett. Annars er þetta snilld.
Það er viss stemming í að búa á svona heimavist. Það er búið að líma miða á stelpnaklósettið þar sem stendur "You did not hit the center - in both toilets! Please pay attention because we have to share the toilet". Þessi miði var long overdue.
En ég klára skólann eftir 21 dag, flyt héðan eftir 23 daga og kem heim til Íslands eftir 40 daga. Þá vantar mig vinnu. Mér líður svolítið eins og ég eigi að fá mér einhverja fullorðins-vinnu af því ég er alveg að verða 23 ára. Samt ætla ég að halda áfram að búa í "kommúnu" í miðbænum þegar ég kem heim. Það er líka best. Sérstaklega fyrir fátækan námsmann. Ég sit hérna á milli tíma uppí skóla, japla á samloku og kaffi úr sjálfsala sem kostaði 80 krónur. Þetta gerist ekki betra. Ég forðast kaffiteríuna vegna þess að þetta tveggja klukkustunda reykingabann sem er þarna yfir hádegið er nýbyrjað, en fólk er búið að vera að reykja þarna inni í allan morgun svo það er ennþá stybba.
En annars ætti ég að fara að drífa mig að lesa smá um stjórnarskrárbreytingar og kanslarann í Austurríki áður en næsti tími byrjar, bara svona af því það er lokapróf á morgun.
Hlakka of mikið til að sjá ykkur öll í febrúar.
Ást, ykkar kútur.

Haha kunna ekki að nota klósett og elda mikinn lauk! Ekki fyrir mig :P Þetta var alveg að redda mér í skólanum í gær, lífgaði upp daginn :)
ReplyDelete