Tuesday, September 6, 2011

Ekkert lýðræði.

Sæl aftur.

Ég er að slaka mér hérna í rafmagnsrúmi uppá hosteli. Ég er orðin gamalmenni með ónýtt bak á öllu þessu brölti í Stokkhólmi. Djók. Ég ákvað samt að taka mér frídag frá þessu mánaðarfríi sem ég er í um þessar mundir. Ég er samt að verða smá brjáluð á því að vera ekki byrjuð í skólanum. Það er enn alveg tæpur mánuður í það að það gerist.

En ég var að lenda í veseni með skiptinámið mitt. Eins flókið og skemmtilegt þetta er, þá samþykkir stjórnmálafræðideildin hvaða kúrsa ég fæ metna úti og hvað ekki. Ég hafði ekki fengið nema einn kúrs samþykktan, Lýðræði: kenning eða veruleiki - í staðinn fyrir Democracy kúrs úti. Allt hitt sem ég ætla að taka fer beint inn í val, þar sem kvótinn er 46 einingar. Allavega, þá er listinn yfir kúrsa sem kenndir eru skólaárið 2011-2012 loksins komin inn. Og ég fer að skoða. Og enginn Democracy kúrs kenndur. Vei.

Ég, ekki nennandi að fá bara 46 einingar inn fyrir þetta skólaárið fer í smá rannsóknarvinnu. Kemur á daginn að ég finn kúrs(a) sem geta komið í staðinn fyrir Evrópusamruna kúrsinn heima. Svo ég tek 2 kúrsa úti (The politics of the European union I&II) og fæ einn metinn heima. Svipað í einingafjölda svo það er í lagi. Ég sem var akkúrat að vona að þetta yrði ekki samþykkt. Í þessu fagi er kennd ein bók heima, en svona 10-12 bækur úti. Reyndar vonandi bara einhver hluti úr 10-12 bókum. Annað væri grín. Svo ég skráði mig í fjarnám í þýskuáfanga í HÍ í haust. Svo ég er smá byrjuð að læra. Húrra.

En allavega. Við Óskar erum búin að fara í skoðunarferð um Stokkhólm, labbandi. Og líka í smá verslunarleiðangur. Og líka í Tívolí. Það var snilldin ein. Við fórum með Huldu og Eið sem eru vinir hans Óskars sem eru bæði í skiptinámi hérna í vetur. Við byrjuðum á því að fara í rússíbana fyrir börn og lúkkaði alls ekki hræðilegur. Sem hann samt var. Jesús. Ég mun seint flokkast undir tívolí-hugrakka manneskju, en ég fór þó í fjóra rússíbana af fimm. Það eina sem ég lagði ekki í fyrir mitt litla líf voru fallturnarnir tveir.

Við lentum í skemmtilegu atviki í gær. Áður en Óskar fór í skólann og ég fór að tjilla inná tölvustofu í skólanum hans, þá fórum við í smá verslunarleiðangur. Óskar keypti sér skó. Þegar við vorum svo búin í skólanum (ég að stelast), og búin að taka lestina heim (sem tekur 25 mínútur frá miðbænum), þá stöndum við á brautarpallinum og ég spyr Óskar hvar skórnir séu. Hann er ekki með þá, ég er ekki með þá. Svo við áttum okkur á því að pokinn með skónum hafi gleymst í búðinni. Svo við tökum lestina aftur niður í bæ og náum inn rétt fyrir lokun. Og sem betur fer voru skórnir þar ennþá. Sem þakkarvott við alheiminn fórum við og fengum okkur mexíkanskan mat og hveitibjór.

Og núna er Óskar komin heim úr skólanum og við ætlum að skella okkur í Jysk að kaupa svefnpoka, dýnur og tjald til þess að nota í ferðalaginu okkar um Ítalíu og Austurríki sem hefst á sunnudaginn.

Þangað til næst,
Jóhanna

3 comments:

  1. Jiii gaman að geta fylgst með kútnum! Og ég vona að þetta reddist allt hjá þér Jóhanna mín, það gerir það nú reyndar alltaf hjá þér hehe
    Eru svo ekki neinar partysögur ;) ?

    ReplyDelete
  2. Hehe nei, ætluðum að kíkja á bar eftir tívolíið á laugardaginn en óskar var ekki nógu flott klæddur svo okkur var ekki hleypt inn á neina staði ;) Annars fórum við á Íslendingabjórhitting á miðvikudaginn og ég hitti Sigurjón þar =)

    ReplyDelete
  3. Ok vá hvað það er mikil snilld hehe! Sorry með mig að vera sein hérna :P

    ReplyDelete