Wednesday, September 21, 2011

Salzach og Radler.

Vá. Það er eiginlega ekki hægt að blogga það er komið svo langt síðan síðast og margt búið að gerast. En ég reyni.

Ég, Óskar og Lára byrjuðum að ferðast 11.september til Rómar og leigðum bílaleigubíl. Þann daginn skoðuðum við Colosseum, keisarahæðina og fundum tjaldstæði numero uno. Við vorum semsagt með tjald, svefnpoka og dýnur alla ferðina og spöruðum hellings pening í gistingu. Sniðugu við. Daginn eftir kláruðum við að skoða Róm og fórum í heimsókn til páfans í Vatíkaninu. Það var engin röð svo við komumst strax inn, en ... það má ekki vera í stuttu eða flegnu hjá páfanum. Svo Lára og Óskar þurftu að vippa út stuttermabolunum og aukakjólnum sem þau voru nýbúin að versla og klæða sig í betur. Ég fékk svo stuttermabol hjá Óskari og skyrtuna hans til að vefja utan um lærin á mér. Útgangurinn á okkur var vægast sagt fyndin.

Ég get ekki sett inn neinar myndir af ráði frá ferðinni vegna þess að Óskar ákvað að taka myndavélasnúruna mína með sér til Svíþjóðar. Sorrí þið.

Um kvöldið gistum við á tjaldstæði í Tarquini og fórum svo til Siena og Flórens á þriðjudeginum. Vá hvað það var heitt. Og fallegt. Og góður matur.

Miðvikudagurinn fór í að skoða Pisa og keyra alla leið til Feneyja og finna sér gott tjaldstæði og fara í sturtu. Þar sváfum við óvart með opið tjald og ég fékk moskítóbit út um allt. Meirasegja á andlitið. Og fékk ofnæmi í bitin og klæjaði. Það var ánægjulegt. Fimmtudagurinn fór í að skoða Feneyjar og keyra til Bolzano til frænda Óskars, Gísla, sem leyfði okkur að gista hjá sér eina nótt. Daginn eftir fórum við svo öll fjögur saman til Ötztal að hitta Ingó sem vinnur í Haiming sem raft guide. Á laugardeginum fórum við svo í rafting hjá Ingó og eftir það kíktum við í vatnasvæðið á Area 47. Sem var snilld. Sunnudagurinn var allt í einu kaldur því það byrjaði að hellirigna um morguninn. Við höfðum planað að vera í Ötztal hjá Ingó fram á mánudagsmorgun en þar sem tjaldið og dótið okkar var á floti ákváðum við að fara bara beint til Salzburg. Á mánudagsmorguninn náði ég svo í lyklana að herberginu mínu á stúdentagörðunum þar. Eftir að hafa skoðað herbergið drifum við okkur í Ikea þar sem við vorum með bílaleigubíl þá var snilld að geta nýtt ferðina. Síðan eftir að innkaupunum hafði verið hent aftur heim til mín héldum við til Vínar. Ennþá í rigningu. Gistum þar eina nótt og síðan fóru Lára og Óskar til síns heima á meðan ég varð eftir og fór til baka til Salzburg. Þetta var stutta ferðasagan.

En núna er ég búin að vera 2 daga í Salzburg ein. Fyrsti dagurinn fór í það að taka upp allt Ikea dótið og koma farangrinum mínum fyrir. Það hefði verið gaman að setja inn myndir af því en ég verð víst að sætta mig við það að myndavélasnúran sé í Svíþjóð í bili. Síðan reddaði ég mér interneti, keypti Austurrískt símanúmer (0043 676 427 1642) og fór í matvörubúð. Í dag þurfti ég svo að fara niðrá skrifstofu í skólanum og melda mig inn. Ég gleymdi svo að sjálfsögðu welcome möppunni á borðinu á skrifstofunni svo ég þarf að fara aftur niðureftir á morgun og ná í hana. Svo þarf ég að fara í hinn enda bæjarins á morgun til að fá einhverja undirskrift svo ég geti meldað mig inn í bæjarfélagið. Allt svona vesen er bara skemmtilegt.

Á föstudaginn er svo risa flóamarkaður niðrí bæ vegna þess að það er e-ð festival hérna. Þá ætla ég að fara með stelpu sem ég kynntist í dag. Hún sagði að þar gæti ég keypt mér ódýrt hjól og svona. Fólki finnst víst rosalega dýrt að kaupa sér miða í strætó, þ.e. 100 evrur önnin. Sem er 16.0000 krónur íslenskar. Svo allir hjóla.

Í dag hitti ég líka stelpu frá Slóvakíu niðrí bæ og hún er sjúklega hjálpsöm og næs. Hún er búin að búa hérna í 1 ár svo hún veit allt um það hvernig þetta virkar hérna. Það var geðveikt veður í dag svo við keyptum okkur radler í súpermarkað og settumst í grasið hjá Salzach ánni. Sjúklega kósí.

En ég er allavega byrjuð að kynnast fólki, er líklegast á leiðinni á Októberfest í Münich um helgina og svo byrjar kynningarvikan á mánudaginn. Allt að gerast. Verst að fólk hér talar almennt ensku svo þýskan er ekkert byrjuð að blómstra. Það gerist kannski þegar maður byrjar í skólanum og fer í tíma þar sem allt fer fram á þýsku.

Þar til næst,
Jóhanna

1 comment:

  1. Snilld - hljómar ekkert smá vel! Er alveg fáránlega abbó. Októberfest verður bara geðveikt! Knús og kram mín kæra

    ReplyDelete